Welcome to Veraldarvinir Website
Latest News:
15/08/2011
Styrktartónleikar fyrir Tierra Bomba
Þann 19.ágúst næstkomandi munu Veraldarvinir standa fyrir styrktartónleikum á Sódóma Reykjavík,sodoma.is. Þar ætla nokkrar frábærar hljómsveitir að gefa vinnu sína til að styrkja okkar ótrúlega gefandi verkefni á Kólumbíu en þar má nefna Vintage Caravan, El Camino, Bjartmar og Bergrisarnir og Haffi Haff. Tónleikarnir hefjast klukkan 9. Endilega komið á tónleikana og styðjið þetta frábæra verkefni. Miðaverð er einungis 1000kr og rennur allur ágróði af miðasölu beint til verkefnisins. Frekari upplýsingar um verkefnið verða veittar á tónleikunum auk þess er hægt að nálgast frekari upplýsinga í búðinni okkar Coco Reykjavík á Hverfisgötu 59.
02/04/2011
Verkefni Veraldarvina á eylunni Tierra Bomba í karabíska hafinu
Ég mun aldrei gleyma þeirri stundu þegar ég kom fyrst til eyjunnar Tierra Bomba undan ströndum Kólombíu í nóvember 2009 ásamt vini mínum Antonio Perez og konu minni Maritzu Pacifico. Siglingin frá stórborginni Cartagena Di Indias tók reyndar aðeins 15 mínútur en að koma til Tierra Bomba var eins og að stíga inn í aðra veröld. Börn hlaupandi nakin um göturnar, ekkert ferskt vatn og flest húsanna í ömurlegu ástandi. Við Antonio ákváðum áður en við heldum til baka að við skildum gera allt sem í okkar valdi gæfist til þess að hjálpa þessu fólki til þess að öðlast betra líf.
Sjálfboðaliðarnir sem tóku þátt í verkefnum okkar í Tierra Bomba á síðasta ári lyftu grettistaki, þau hjálpuðu ekki aðeins við að mála og steypa upp hús heldur gáfu þau íbúum eyjunnar nýja von og vinskap. Ef okkur tekst að fyrirbyggja að eitt barn muni ekki fara út í vændi á næstu mánuðum þá getum við verið stolt af okkar störfum, ef mörg börn öðlast hamingju vegna okkar starfa og finna sér annan farveg í lífinu þá mun draumar okkar rætast.
Ef þið viljið taka þátt í verkefnum okkar í suðurhöfum 2011 þá sendið linu á toti@veraldarvinir.is eða hringið í síma 8682324
Tóti Ivarsson
21/12/2010
Gleðileg jól og farsælt komandi ár

Veraldarvinir óska landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Nú um jólin eru 80 erlendir sjálfboðaliðar hér á landi á vegum okkar samtaka og er starf þeirra til mikils gagns fyrir land okkar og þjóð.
Veraldarvinir fagna tíu ára afmæli á næsta ári og munum við fagna því á margvíslegan hátt, við erum frumkvöðlar í sjálfboðaliðaverkefnum hér á landi og erum stolt af því frábæra verki sem okkar fólk vinnur á hverjum degi.
